tindastoll7fl
Góða Fótboltasíður
Æfingatafla allra yngri flokkanna
17.08.2008 20:20:29 / tindastoll7fl

Pása frá æfingum

Jæja þá er tímabilinu lokið hjá 6. og 7. flokk kvenna. Það verður núna pása í fótboltanum þangað til um miðjan september. Þannig að það er ekki æfing á morgun. Ég vona að sem flestir haldi áfram að æfa í vetur <img src=" src="http://tindastoll6fl.blogcentral.is/images/smileys/icon_smile.gif" /> Þjálfaramálin fara síðan að skýrast og verða þau auglýst þegar það er komið á hreint <img src=" src="http://tindastoll6fl.blogcentral.is/images/smileys/icon_smile.gif" />

Kveðja,
Inga Jóna

» 0 hafa sagt sína skoðun

10.08.2008 17:39:18 / tindastoll7fl

Frí á morgun

Jæja þá er Króksmótið búið. Stelpurnar stóðu sig allar frábærlega ða mínu mati. En það er sem sagt frí á morgun á æfingu en sami tími og venjulega á þriðjudag upp á Nöfum. Þetta verður ekki erfið vika hjá þeim en endilega hvetja þær til að mæta þó að mótin séu búin þetta sumarið.

Vonandi ætla sem flestar að halda síðan áfram í vetur þannig að við mætum enn öflugari næsta sumar! 8)

Kveðja,
Inga Jóna

» 0 hafa sagt sína skoðun

07.08.2008 22:42:39 / tindastoll7fl

Liðin fyrir Króksmót

Liðin á Króksmótinu 2008 í 7.flokki TindastólsJ

Í 7. Flokkmótinu í ár verðum við með 6 lið frá Tindastól, 4 strákalið og 2 stelpulið. Við erum skráð með 2 lið í B liðs keppnina, 1 lið í C liðum og síðan 3 í D liðs keppnina. Liðsstjórar verða með hverju liði fyrir sig og síðan reyna þjálfararnir að ganga á milli og hjálpa sem flestum liðum.

Öll liðin eiga að mæta á laugardagsmorguninn kl 08.30 á syðsta völlinn við Íþróttahúsið í skrúðgöngu. Þar munu þau síðan hitta sína liðsstjóra og fylgja sínu liði.
Ég vil minna foreldra á að fylgjast með heimasíðunni okkar og sjá þar leikjaplan fyrir sín börn.
www.tindastoll.is og síðan velja fótbolti og þá króksmót.

Svona verða hins vegar liðin á þessu móti.

B1: Óðinn Smári, Hjörtur, Ragnar, Jón Arnar, Jóhann Daði, Skírnir, Mikael.

B2: Samúel Már, Hólmar Sindri, Guðmar, Kristófer, Ísak, Eysteinn, Gunnar Valur.

C: Ríkharður, Ingi, Konráð, Jóhann Friðrik, Andri Snær, Haukur Steinn, Róbert, Jón Gísli.

D1: Samúel, Daníel, Ívar Elí, Ásgeir, Magnús, Birkir, Hólmar Björn, Arnar Bjarki.

D2: Þórdís, Ýrena, Hera, Eyvör, Laufey, Bjarney, Dagmar, Berglind, Lára.

D3: Birna, Alexandra, Ingibjörg Veiga, Stefanía, Birgitta, Karen, Áróra, Thelma.

Ef að það er einhver sem að við erum að gleyma þá biðjumst við velvirðingar á því og endilega látið vita svo að við getum bætt úr því hið snarasta.

Sjáumst hress á laugardagsmorguninn kl 08.30

Kær kveðja
Donni (8639290), Inga Jóna (8678675) og Arnar Skúli (849943) 8)


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.07.2008 23:52:09 / tindastoll7fl

Æfing næsta þriðjudag

KA hefur boðið stelpunum á æfingu næsta þriðjudag. Þeir hafa sent mér drög að dagskrá fyrir stelpurnar. Þeir minnast ekkert á landsliðskonu í þeirri dagskrá en ég vona að af því verður en upphaflega þegar þeir töluðu um þetta ætluðu þeir að reyna það, annars sjá þjálfarar KA og aðrir þjálfarar á Norðurlandinu um þetta.
Þeir eru sem sagt að bjóða öllum stelpum í 6. og 7. flokk stelpna á Norðurlandi að koma á sameiginlega æfingu. Hugmyndin hjá þeim er að skipta liðunum í 2-3 hópa eftir aldri.

Uppkast af dagskrá:
Kl. 11:00-12:00 Æfing -Settar upp stöðvar og stelpunum skipt niður
     12:00-13:00 Stelpurnar fá hressingu og horft verður á video
     13:00-14:00  Lfing þar sem verður skipt niður í lið og spilað
     Upp úr kl. 14:00 verður grill handa stelpunum og aðstandendum þeirra.

Þær stelpur sem hafa áhuga á að fara eru beðnar um að skrá sig hér á blogginu eða í tölvupósti til mín (ingajonas (hjá) simnet.is).

Samkvæmt upplýsingum sem ég fékk sent frá KA þá kostar þetta ekkert fyrir stelpurnar og þetta er góð tilbreyting á sumrinu fyrir þær. Stelpurnar þurfa sjálfar að komast á staðinn og því væri tilvalið ef einhverjir geta keyrt stelpurnar og farið þá jafnvel nokkrar saman.

Hvað mótið varðar á Húsavík þá finnst mér ólíklegt að af því verði. Ég hef ekkert heyrt meira frá þjálfaranum og ekkert hefur verið sent til Tindastóls um það. En Króksmótið er síðan 2 helgina í ágúst og þar eru stelpurnar velkomnar að keppa.

Kveðja,
Inga Jóna

» 4 hafa sagt sína skoðun

13.07.2008 20:54:11 / tindastoll7fl

Frí á morgun

Þá er Símamótið búið og stóðu allar sig mjög vel <img src=" src="http://tindastoll6fl.blogcentral.is/images/smileys/icon_smile.gif" /> Takk fyrir frábæra helgi bæði foreldrar og þátttakendur <img src=" src="http://tindastoll6fl.blogcentral.is/images/smileys/icon_smile.gif" />

Þar sem helgin er búin að vera löng og erfið fyrir margar er frí á morgun á æfingu(mánudag 14.júlí). Notið tímann og hvílið ykkur vel eftir helgina <img src=" src="http://tindastoll6fl.blogcentral.is/images/smileys/icon_smile.gif" />

Kveðja,
Inga Jóna

» 0 hafa sagt sína skoðun

09.07.2008 22:47:11 / tindastoll7fl

Símamótið breytt

Einhver lið hafa dregið sig úr keppni og því kemur staðfest leikjaniðurröðun í kvöld eða fyrramálið. Vinsamlega skoða það til að vita hvenær er mæting.

Það hafa 7 skráð sig í 7.flokk kvenna: Laufey Harpa, Telma Björk, Ingibjörg Veiga, Þórdís Dóra, Bryndís Heiða, Alexandra Ósk og Berglind Björg.

Það er mæting 45 mín. fyrir fyrsta leik og þá á að greiða fyrir mótið sem er 5500 kr.

Kveðja,
Inga Jóna

» 0 hafa sagt sína skoðun

03.07.2008 12:25:31 / tindastoll7fl

Símamótið 2008

Þá styttist í Símaótið sem er haldið í Kópavogi. Það er 10.-13. júlí. Það er foreldrarfundur næsta þriðjudag kl. 18:30 með þeim sem eru að fara og verður þá farið yfir mótið.Stelpurnar fá miða heim til að minna á hann.Við erum skráð með 1 lið í 7. flokk kvenna á mótið.
En þær sem hafa ekki skráð stelpuna á mótið endilega kvitta hér eða senda mér tölvupóst (ingajonas AT simnet.is), einnig hægt að senda með miða á æfingu. Það þarf að taka fram hvort hún sé í gistingu og mat eða sé með foreldrum yfir mótið.

Allar upplýsingar um Símamótið er hægt að finna hér.

Kveðja,
Inga Jóna

» 2 hafa sagt sína skoðun

26.06.2008 12:38:10 / tindastoll7fl

Landsbankamót 2008

Þá er komið að Landsbankamótinu okkar góða. Mótið byrjar núna á laugardagsmorguninn 28. júní en ekki er endanleg niðurröðun leikja tilbúin, þannig að við viljum benda fólki á að kíkja á heimasíðu Tindastóls til þess að vita hvenær á að mæta. Sem sagt, Tindastoll.is síðan fótbolti, og þá Landsbankamót og síðan leikjaniðurröðun. Einnig er hægt að ýta hér.

Allar stelpurnar sem eiga búning koma í þeim og spila í þeim, en þeim sem vantar búning geta nálgast þá í Vallarhúsinu á laugardagsmorguninn fyrir leik hjá sínu liði.

Kostnaður við mótið er 2000 kr. eins og hefur verið undanfarin ár og verður það að greiðast til liðsstjóra viðkomandi liðs, fyrir fyrsta leik.

Liðin verða tilkynnt á æfingu í dag. Stelpurnar fá blöð heim með þessum sömu upplýsingum ásamt liðunum.

Kveðja,
Inga Jóna 867-8675

» 0 hafa sagt sína skoðun

24.06.2008 18:56:46 / tindastoll7fl

Landsbankamót og Símamót

Það styttist óðum í mót sumarsins hjá 7.fl kvenna. Núna um helgina er Landsbankamót og 10.-13. júlí er Símamót. Ég þarf að gefa upp ca fjölda sem ætlar á Símamót og því væri mjög gott ef það er vitað hverjir ætla að fara að kommenta hér á það, hvort barnið komi eða ekki og þá í hvernig gistingu það verður (heimahús eða skólastofu á mótinu).

Kveðja,
Inga Jóna

» 0 hafa sagt sína skoðun

16.03.2008 12:57:29 / tindastoll7fl

Foreldrafundir

Foreldrafundur

Kæru foreldrar núna verðum við að fara að hittast og halda fundi og er fundarefnið sumarið framundan.

Við vitum að þetta er stuttur fyrirvari en vonum að sem flestir sjái sér fært að koma, því það er gífurlega mikilvægt að heyra sem flest sjónarmið, svo að allir séu sáttir.

Fundirnir verða núna næstkomandi mánudag og þriðjudag en þeir verða haldnir í vallarhúsinu. Tímasetningar fundanna verða eftirfarandi:

Mánudagurinn 17. mars: Kl 18-19 7 flokkur kvenna,  kl 19-20 6 flokkur kvenna, kl 20-21 5 flokkur kvenna, kl 21-22 4 flokkur karla.

Þriðjudagurinn 18. mars: Kl 18-19 7 flokkur karla, kl 19-20 6 flokkur karla, kl 20-21 5 flokkur karla, kl 21-22 3 flokkur karla.

Endilega veriði duglega að láta alla vita af fundunum, hlökkum til að sjá ykkur sem flest, hress, kex og blessJ

Kveðja Donni kype_tb_imgOnOff(this,1,'0',true,16,'');return skype_tb_stopEvents();" class="skype_tb_injection" onmousedown="javascript:skype_tb_imgOnOff(this,2,'0',true,16,'');return skype_tb_stopEvents();" id="softomate_highlight_0" onmouseover="javascript:skype_tb_imgOnOff(this,1,'0',true,16,'');" title="Call this phone number in Iceland with Skype: +3548639290" onclick="javascript:doRunCMD('call','0',null,0);return skype_tb_stopEvents();" onmouseout="javascript:skype_tb_imgOnOff(this,0,'0',true,16,'');" context="8639290" durex="0">oSkypeFlag(this,'0',1,1,16);return skype_tb_stopEvents();" class="skype_tb_imgA" onmousedown="javascript:doSkypeFlag(this,'0',2,1,16);return skype_tb_stopEvents();" id="skype_tb_droppart_0" onmouseover="javascript:doSkypeFlag(this,'0',1,1,16);" title="Skype actions" style="BACKGROUND-IMAGE: url(C:OCUME~1 NNALE~1LOCALS~1Temp__SkypeIEToolbar_Cache?847a8f5723cfca6b3fd9946506staticinactive_a.compat.flex.w16.gif)" onclick="javascript:skype_tb_SwitchDrop(this,'0','sms=1');return skype_tb_stopEvents();" onmouseout="javascript:doSkypeFlag(this,'0',0,1,16);">CUME~1 NNALE~1LOCALS~1Temp__SkypeIEToolbar_Cache?847a8f5723cfca6b3fd9946506staticúmfamfam/IS.gif)">8639290 og Gaui kype_tb_imgOnOff(this,1,'1',true,16,'');return skype_tb_stopEvents();" class="skype_tb_injection" onmousedown="javascript:skype_tb_imgOnOff(this,2,'1',true,16,'');return skype_tb_stopEvents();" id="softomate_highlight_1" onmouseover="javascript:skype_tb_imgOnOff(this,1,'1',true,16,'');" title="Call this phone number in Iceland with Skype: +3546605545" onclick="javascript:doRunCMD('call','1',null,0);return skype_tb_stopEvents();" onmouseout="javascript:skype_tb_imgOnOff(this,0,'1',true,16,'');" context="6605545" durex="0">oSkypeFlag(this,'1',1,1,16);return skype_tb_stopEvents();" class="skype_tb_imgA" onmousedown="javascript:doSkypeFlag(this,'1',2,1,16);return skype_tb_stopEvents();" id="skype_tb_droppart_1" onmouseover="javascript:doSkypeFlag(this,'1',1,1,16);" title="Skype actions" style="BACKGROUND-IMAGE: url(C:OCUME~1 NNALE~1LOCALS~1Temp__SkypeIEToolbar_Cache?847a8f5723cfca6b3fd9946506staticinactive_a.compat.flex.w16.gif)" onclick="javascript:skype_tb_SwitchDrop(this,'1','sms=1');return skype_tb_stopEvents();" onmouseout="javascript:doSkypeFlag(this,'1',0,1,16);">CUME~1 NNALE~1LOCALS~1Temp__SkypeIEToolbar_Cache?847a8f5723cfca6b3fd9946506staticúmfamfam/IS.gif)">6605545


» 3 hafa sagt sína skoðun

20.12.2007 11:02:44 / tindastoll7fl

HÆHÆ öllsömul

Jæja þá er allt að gerast:)

Hér hefur verið útbúin bloggsíða fyrir 7.flokk bæði karla og kvenna. Hér á þessari síðu munu þjálfararnir vera duglegir að uppfæra foreldra og iðkendur um það sem er að gerast á líðandi stundu og það sem er á döfinni.

Hérna munu foreldrar geta séð allt um fyrirhuguð mót sem og ef einhverjar breytingar verða á æfingaskipulagi eða öðru því um líku.

Hér verður hægt að láta vita ef að börnin eru veik og komast ekki á æfingar sem er mjög mikilvægt fyrir þjálfara að vita því þeir skipuleggja æfingarnar útfrá ákveðnum fjölda.

Æfingatafla hvers flokks fyrir sig verður hér á síðunni og einnig munu vera upplýsingar um þau mót sem farið verður á.

Þjálfarar munu reyna sitt besta við að uppfæra síðunna sem oftast ef að eitthvað er að gerast.

Með von um gott samstarf á árinu 2008 og takk fyrir allt á árinu sem er að líða.

Kveðja Donni og Gaui Yfirþjálfarar


» 0 hafa sagt sína skoðun


RSS tengill